Góðar umræður um sölumál
Við héldum námskeiðið Sala á mannamáli í vikunni þar sem Helga Dögg Björgvinsdóttir ráðgjafi fjallaði meðal annars um ákvörðunarferli kaupenda sem hefur breyst töluvert á undanförnum árum. Þá var jafnframt rætt um mikilvægi þess að vera sérfræðingur á sínu sviði, nýta sér sína sérþekkingu og reynslu og segja sögur í stað þess að þylja upp tölfræði.
Góðar umræður
Á námskeiðinu sköpuðust góðar umræður um sölumál og að því loknu var fólk jafnframt að spjalla saman og styrkja tengslanetið.
Samkvæmt könnun sem gerð var meðal þátttakenda voru 82% ánægð með fræðsluna í heild sinni og 91% sögðu jafnframt að fyrirlesturinn hafi staðið undir væntingum. Þá sögðu einnig 82% líklegt að fræðslan muni nýtast þeim í starfi.
Námskeiðið var haldið í hliðarsalnum á Kænunni við Óseyrarbraut og þökkum við Helgu Dögg fyrir áhugaverða fræðslu.