Síðasti stjórnarfundur núverandi stjórnar

Stjórn markaðsstofunnar kom saman til fundar fimmtudaginn 5. maí síðastliðinn. Um var að ræða síðasta fund núverandi stjórnar en aðalfundur stofunnar verður haldinn þann 17. maí næstkomandi þar sem meðal annars verður kosið um tvö stjórnarsæti. Megin málefni fundarins var því eins og gefur að skilja komandi aðalfundur.

Hefðbundin aðalfundarstörf

Á dagskrá aðalfundar eru hefðbundin aðalfundarstörf líkt og skýrsla stjórnar 2021-2022, kynning á ársreikningi 2021 sem og starfs- og fjárhagsáætlun 2022. Framkvæmdastjóri vinnur að kynningunum í samstarfi við formann og varaformann.
Framkvæmdastjóri upplýsti að nú þegar hafi tveir aðilar lýst yfir áhuga á að bjóða sig fram til stjórnarsetu en ákveðið var að halda áfram að auglýsa eftir fleiri framboðum. Á aðalfundinum þarf jafnframt að kjósa skoðunarmenn reikninga til tveggja ára og framkvæmdastjóra falið að athuga hvort núverandi skoðunarmenn séu tilbúnir að bjóða sig aftur fram.

Heimsóknir frá oddvitum flokkanna

Varaformaður greindi frá góðum og áhugaverðum fundum með oddvitum stjórnmálaflokkanna sem hann ásamt framkvæmdastjóra hafa átt að undanförnu.

Þakkir

Í lok fundar var stjórnarmönnum sem láta nú af embætti þakkað gott starf en það er einróma álit stjórnar að samstaða og góður vinnuandi hafi einkennt störfin á undanförnum misserum.

Previous
Previous

Viltu taka sæti í stjórn?

Next
Next

Sjö ný fyrirtæki bætast í hópinn