Viltu taka sæti í stjórn?
Við leitum að nýjum stjórnarmönnum úr röðum atvinnulífsins sem taka sæti fyrir hönd aðildarfyrirtækja markaðsstofunnar. Í stjórn sitja fjórir aðilar frá aðildarfyrirtækjum stofunnar og þrír fyrir hönd Hafnarfjarðarbæjar, auk tveggja varamanna
Á næsta aðalfundi okkar, þann 17. maí næstkomandi, verður kosið um tvö sæti í stjórn. Áhugasamir vinsamlegst láti framkvæmdastjóra vita en hún veitir jafnframt nánari upplýsingar. Hægt er að senda póst á msh@msh.is eða hringja í síma 840 0464.