Back to All Events

Þekkingardagur Hafnarfjarðar

Markmiðið með þekkingardeginum er að kynna þau fjölmörgu frábæru fyrirtæki sem starfa í Hafnarfirði.
Dagskráin er fjölbreytt og við hvetjum ykkur til að heimsækja þessi frábæru fyrirtæki og kynna ykkur það
sem þau hafa uppá að bjóða.

*Dagskráin er ekki endanleg og mun eitthvað bætast inn í vikunni

  • Dýralæknastofa Hafnarfjarðar býður gestum og gangandi í heimsókn milli 10-12 og verður 15% afsláttur af öllum vörum í búiðinni.

    Dýralæknastofa Hafnarfarðar er ný dýralæknastofa fyrir gæludýr þar sem fagmennska, virðing og velferð gæludýra er í fyrirrúmi. Að stofunni standa Silja Edvardsdóttir og Sólrún Dís Kolbeinsdóttir dýralæknar og Berglind Guðbrandsdóttir hundanuddari og hundaatferlisráðgjafi. Þær deila sameiginlegri ástríðu fyrir dýraheilbrigði og heildrænni nálgun á meðferð og umönnun dýra.

    Frekari upplýsingar um okkur og starfsemina má finna á heimasíðunni: 

    https://www.dyrhfj.is/ 

  • Herjólfsgufan opnaði í vikunni í Herjólfsgötu og ætla að bjóða í funheita heimsókn milli kl.11-13 á þekkingardeginum. Saunan er frá Trefjum, rótgrónu Haffirsku fyrirtæki.

    Herjólfsgufan býður upp á leiddar gufu stundir á frábærum stað í Hafnarfirði með beint aðgengi að sjónum.

    Hægt er að finna Herjólfsgufuna á Instagram

  • Keramik Bjarna Sigurðssonar nýtur sín oft í tímaritinu Bo Bedre. Hann hefur haldið í samböndin í Danmörku síðan hann lærði þar í lok tíunda áratugarins. Bjarni ætlar að bjóða ykkur velkomin í heimsókn á vinnustofu hans við Hrauntungu 20, milli kl.11-13. Léttar veitingar í boði og tilboð á öllum vörum.

    Öll velkomin.

  • Kynning á nýjum Firði verður haldin í Firði kl.12:00 á Þekkingardaginn.

    Strandgatan á sér langa sögu sem aðal verslunargata Hafnarfjarðar og hefur í gegnum tíðina iðað af lífi. Síðar eignuðust Hafnfirðingar eigin verslunarmiðstöð, Fjörð og mun nýbyggingin tengja þessi tvö verslunarsvæði betur saman með millibyggingu frá Strandgötu beint inn í Fjörð.

    Byggingareiturinn liggur að Strandgötu 26-30.  Á sínum tíma var búið að skipuleggja háhýsi á reitnum en vegna formgalla fór það aldrei í gegn.

    Reiturinn stóð því auður í 22 ár og þegar farið var að huga að uppbyggingu var það að stóru leiti í höndum lóðarhafa að sjá um skipulagið.

    Uppbyggingin mun skila Hafnfirðingum glæsilegu íbúðahóteli, fjölda íbúða, stækkunar á bókasafni með nýjum áherslum ásamt nýju verslunarhúsnæði þar sem kemur góð tenging á milli Strandgötunnar og verslunarmiðstöðvarinnar Fjarðar.

  • Plötumarkaðurinn sívinsæli á Bókasafni Hafnarfjarðar mun standa í viku, frá 24. maí til 30. maí.

    Við erum á fullu að laga til í geymslum og grisja safnkost fyrir flutninga – og nú bjóðum við upp á hinn allra besta súper-plötumarkað fyrr og síðar, með geisladiskum, DVD og vínil fyrir alla sem elska músík!

    Fyrstir koma fyrstir fá á þessum einstaka viðburði – við eigum fullt af tónlist sem langar að koma heim með þér og búa hjá fólki sem er tilbúið að sinna henni og hlusta á oft og mörgum sinnum. Allt á 200 krónur stykkið, magntilboð 30 stykki á 5000 og málið dautt!

    Húsið opnar kl 12:00. Posi á staðnum!

  • Bjargey Ingólfsdóttir fagurkeri verður með kynningu á litunum sínum sem við hönnuðum í samstarfi við hana. 

    Fyrstu 5 sem versla fyrir meira en 15.000kr fá veglega gjafapoka frá okkur.

    Afslættir í verzlun 

    Stefán Örn málarameistari og annar eigandi af Farver verður á staðnum og veitir faglega ráðgjöf á öllu því sem þarf er tengist málningarverki. 

    Léttir drykkir og veitingar í boði fyrir alla og öll börn fá ís ( á meðan birgðir endast) 

  • Item description
  • Feel Iceland ætlar að vera með pop-up í gróðuhúsinu á Thorsplani milli kl.12:00-14:00.

    Feel Iceland er stofnað af konum fyrir konur. Fyrsta varan okkar kom á markað árið 2014 þegar kollagen var lítið þekkt en í dag er Feel Iceland kollagenið það mest notaða á Norðurlöndunum.

     Frá árinu 2013 hefur Feel Iceland nýtt yfir 3.000 tonn af fiskroði sem áður var fargað til að búa til hágæða fæðubótaefni og drykki. Feel Iceland kollagenið er
    framleitt úr íslensku fiskroði í hátækni framleiðslu með gæðastandarda fyrir lyfjafyrirtæki til þess að tryggja bestu mögulegu gæðin.

     

    Feel Iceland býður aðeins upp á hreinar hágæðavörur semhafa jákvæð áhrif á samfélag okkar og umhvefi.

  • Hestaferðamiðstöðin Íshestar er rótgróið ferðaþjónustufyrirtæki sem hefur verið starfrækt síðan 1982.  Miðstöð Íshesta í Hafnarfirði var svo opnuð árið 2000. Þar er allskonar afþreying í boði eins og reiðtúrar, teymingar undir börnum, barnaafmæli og reiðnámskeið fyrir allan aldur. Aðstaðan er eins og best verður á kosið, bæði fyrir fólk og hesta.

    Í fyrirtækinu vinna reyndir starfsmenn sem tryggja ánægju og öryggi gesta með þvíað leitast við að finna hesta sem hæfa viðskiptavininum. Öryggi þeirra er alltaf í fyrirrúmi og aðbúnaður til fyrirmyndar. Fyrirtækið býður upp á þjónustu við ; einstaklinga, fjölskyldur, vinahópa, vinnufélaga og aðra sem vilja skemmta sér saman og njóta útivistar í fylgd fagmanna.

  • Hafnarborg býður gestum og gangandi í heimsókn að kynnast því sem fer fram við undirbúning nýrrar sýningar. Á staðnum verður farið yfir hvernig sýningar eru settar upp, hverjir koma að verkinu og hvernig ferlið sjálft er. Um er að ræða skemmtilegt tækifæri til að skyggnast inn í heim listasafnsins og sjá vinnuna sem liggur að baki lokaniðurstöðu sýninga.

  • Halldóra í Kvennastyrk verður með opið hús og kynningu á starfseminni og nýrri línu í íþróttafatnaði. Þær konur sem mæta fá frían vikupassa.

    Öll velkomin

  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Endum æðislegan Þekkingardag í gleðistund á Betri stofunni milli kl.16-18. Betri stofan er vanalega eingöngu fyrir aðildarfélaga en ætla að opna dyr sýnar og bjóða gestum í heimsókn. Frábær tilboð á barnum!

Previous
Previous
8 May

Fyrirtækjakaffi

Next
Next
28 May

Sumarkokteill á Sól