HLUTVERK OG MARKMIÐ

Hlutverk og markmið Markaðsstofu Hafnarfjarðar

Við viljum blómlegt atvinnulíf í Hafnarfirði

Markaðsstofa Hafnarfjarðar vinnur að því að búa til sterkt samfélag fyrirtækja í Hafnarfirði og auka eftirspurn eftir hvers kyns vöru og þjónustu í Hafnarfirði með það að leiðarljósi að auka viðskipti innan bæjarins.

Markaðsstofan er sjálfseignarstofnun sem rekin er á aðildargjöldum, tekjumöflun og styrk frá bænum.

Markaðsstofa Hafnarfjarðar gegnir mikilvægu hlutverki sem tengiliður atvinnulífsins, Hafnarfjarðarbæjar og annarra aðila sem vilja stuðla að uppbyggingu og þróun bæjarfélagsins. Með starfsemi sinni vinnur Markaðsstofan að því að efla tengsl og samstarf fyrirtækja, miðla upplýsingum, stuðla að fræðslu og skapa vettvang fyrir öflugt tengslanet, samtal og samvinnu. Jafnframt er unnið markvisst að því að styrkja tengsl við fyrirtæki í bænum, sem og fyrirtækjatengsl, og styðja við þróun fjölbreytts atvinnulífs til lengri tíma.

Helstu hlutverk markaðsstofunnar

Starfsmaður og stjórn MSH

Markaðsstofan er með einn starfsmann sem er í 60% starfshlutfalli ásamt því að vera með sjö manna stjórn og áheyrnarfulltrúa frá bænum. Stjórnin samanstendur af þremur sem eru pólitískt skipaðir og fjórum úr atvinnulífinu. Áheyrnarfulltrúi, skipaður af bænum er Sunna Magnúsdóttir.