Back to All Events
Edda Björgvins ætlar að fræða okkur um mikilvægi að hafa húmor og gleði að leiðarljósi. Húmor einn og sér getur orsakað flæði af mikilvægum vellíðunarhormónum. Við hlátur, hreyfingu eða söng getum við framkallað helmingi meira af þeim en vanalega og þá styrkjum við ónæmiskerfið, virkjum heilann, verðum betri í samvinnu, orkumeiri og vinnum betur. Ótrúlegir hlutir gerast við að auka hamingju og vellíðan.
Námskeiðið verður haldið í höfuðstöðvum Icelandair, Flugvöllum 1. Mikilvægt er að skrá sig þar sem um takmarkað sætapláss er að ræða.