Back to All Events

Raunverulegur vöxtur með bættri markaðssetningu

  • Markaðsstofa Hafnarfjarðar 53 Strandgata Hafnarfjörður, Hafnarfjarðarkaupstaður, 220 Iceland (map)

Vöxtur gerist ekki fyrir tilviljun. Hann verður til þegar markhópur, skilaboð og gögn vinna saman.

Með Örnu Þorsteins - Eiganda Festival, Markaðsstofu

Markaðsstofan stuðlar af fræðslu og fróðleik fyrir aðildarfélaga. Við reynum eftir fremsta megni að vera með puttann á púlsinum varðandi það sem er að gerast og er áhugavert hverju sinni sem skilar aðildarfélögum sem mestan ávinning.

Í þessari vinnustofu fer Arna Þorsteinsdóttir yfir hvernig fyrirtæki geta byggt upp markaðssetningu sem styður raunverulegan og sjálfbæran vöxt.

Við skoðum hvernig á að finna og skilgreina réttan markhóp, hvernig á að tala við hann með skýrum og markvissum skilaboðum og hvar best er að ná til hans.

Við ræðum einnig hvernig gögn og mælingar geta hjálpað fyrirtækjum að taka betri ákvarðanir um næstu skref í markaðssetningu.

Vinnustofan er bæði fræðsla og verkefnavinna. Þátttakendur fara yfir raunveruleg dæmi og vinna með eigin fyrirtæki á staðnum, með það að markmiði að fara heim með skýrari mynd af markhópi sínum, skilaboðum og næstu skrefum í markaðsstarfi.

Arna er með yfir áratuga reynslu af auglýsinga og markaðsmálum. Hún var ein af eigendum Sahara auglýsingastofu og vinnur í dag með eigið vörumerki, Festival, þar sem hún býður upp á dýpri og nánari markaðsstörf með fyrirtækjum. Hún vinnur með fjölbreyttri flóru viðskiptavina og situr einnig í stjórn Arctic Adventures.

Aðildarfélagar í Markaðsstofunni fá ókeypis aðgang,
aðrir borga 24.900 kr.

Takmarkað pláss - mikilvægt að skrá sig til að tryggja sér pláss

Previous
Previous
5 March

Pílukeppni fyrirtækja

Next
Next
10 April

Fyrirtækjaheimsókn