Sumarkokteill Markaðsstofunnar á spennandi nýju kaffihúsi í Hellisgerði.
Knútur Hreiðarsson matreiðslumaður ásamt eiginkonu sinni Theódóru Ingibergsdóttur opna Helliskaffi í hinu sögulega húsi Oddrúnarbæ í hjarta Hellisgerðis í sumar.
Fimmtudaginn 11. júní bjóðum við aðildarfélögum Markaðsstofunnar að fá forsmekkinn á þessu æðislega nýja kaffihúsi, hitta eigendur og skála saman fyrir sumrinu.
Helliskaffi fær Oddrúnarbæ, tvo gróðurhús á lóðinni og svæði fyrir framan svið og hús til afnota næstu fjögur árin.
Markmiðið er að skapa lifandi samverustað fyrir gesti á öllum aldri, með sérstakri áherslu á barnvæna upplifun, litla viðburði, tónlist og samkomur yfir árið. Stefnt er að því að opna Helliskaffi í byrjun júní.
Hlökkum til að sjá ykkur í sumarskapi