Uppfærð dagskrá

Sökum sóttvarnarreglna þurftum við að fresta námskeiðinu og fyrirtækjaheimsókninni sem áttu að vera í janúar. Nýjar dagsetningar má sjá hér að neðan.

Nánar um námskeiðin hér að neðan.
Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar sökum sóttvarnalaga.

Fyrir hverja

Námskeiðin okkar og fyrirtækjaheimsóknir eru fyrir starfsfólk aðildarfyrirtækja markaðsstofunnar og eru þeim að kostnaðarlausu. Einyrkjakaffið er hins vegar öllum opið.

Skráning og fyrirvari

Mikilvægt er að skrá sig á námskeið og í fyrirtækjaheimsóknirnar með því að senda póst á msh@msh.is.

Dagatal

Við erum búin að setja upp dagatal með öllum okkar viðburðum - endilega skelltu því inn í þitt dagatal.

Skráning í markaðsstofuna

Ef þitt fyrirtæki er ekki skráð í markaðsstofuna má gera það hér


SÖLUMÁL Á MANNAMÁLI

Námskeið þar sem farið er í helstu þætti söluferlisins. Hvað hefur breyst með auknu aðgengi að upplýsingum og hvað þýðir það fyrir sölumanninn? Hver er munurinn á því að selja og veita ráðgjöf, hvor leiðin er líklegri til árangurs? Skiptir persónuleg mörkun (branding) máli?

Hver
Helga Dögg Björgvinsdóttir, ráðgjafi og viðskiptastjóri

Hvenær og hvar
Þriðjudaginn 1. mars kl. 9:00-10:30 á Kænunni. 

Skráning
Skráning á msh@msh.is - skráningarfrestur er til og með 25. febrúar

 ***

INSTAGRAM – TIPS OG TRIX

Instagram getur verið frumskógur og við ætlum að taka ykkur í létt ferðalag í gegnum hann og staldra við í því mikilvægasta. Við munum fara yfir grunnatriði eins og Story, Feed, Reels, Highlights, tögg, Gifs, uppsetningar, tengingu við Facebook, deilingar, efnissköpun, sjálf vinnuumhverfið og fleira.

Hver
Júlía Skagfjörð Sigurðardóttir og Jóhanna Guðrún Jóhannesdóttir, eigendur Mort Media en báðar eru þær menntaðir viðskipta- og markaðsfræðingar, m.a. með sérhæfingu í stafrænum miðlum. Þær hafa báðar yfir áratugareynslu í markaðs- og auglýsingamálum og hafa komið víða við.

Hvenær og hvar
Miðvikudaginn 23. mars kl. 9:00-10:30 

Skráning
Skráning á msh@msh.is - skráningarfrestur er til og með 21. mars

 ***

SIGRAÐU SJÁLFAN ÞIG AFTUR OG AFTUR

Fyrirlestur þar sem fjallað er um hvernig hægt er að brjótast úr fari vanans, stefna hærra og sækja lengra – hvort heldur er í starfi eða einkalífi. Unnið út frá hugmyndafræði markþjálfunar og þátttakendur fá verkfæri sem auðvelda þeim til að ná markmiðum sínum og sigra sjálfan sig.

Hver
Ingvar Jónsson, stjórnunar- og markaðsfræðingur og PCC-markþjálfi

Hvenær og hvar
Þriðjudaginn 26. apríl kl. 9:00-10:30 

Skráning
Skráning á msh@msh.is - skráningarfrestur er til og með 23. apríl