Back to All Events

Byrjaðu á ÞÉR!

  • Markaðsstofa Hafnarfjarðar Online (map)

Byrjaðu á þér
Netfyrirlestur á vegum Markaðsstofunnar


Þóra Hrund framkvæmdastjóri Markaðsstofunnar og eigandi munum ætlar að vera með netfyrirlesturinn Byrjaðu á þér!
Þóra Hrund er viðskipta- og markaðsfræðingur með master í stjórnun og stefnumótun. Einnig er hún mark- og teymisþjálfi og hefur gefið út munum dagbókina síðastliðin 12 ár sem miðar að því að auðvelda persónulega stefnumótun, markmiðasetningu, tímastjórnun og að efla jákvæða og þakkláta hugsun.

Þegar við viljum ná árangri og persónulegum vexti þurfum við að gefa okkur tíma og rými til að líta inná við og kortleggja hvað það er sem okkur raunverulega langar og hvað það er sem styður okkur í því að komast þangað.

Hvar ert þú á þínum eigin forgangslista?

Við sinnum hlutverkum, vinnu, fjölskyldu og verkefnunum. Mætum þörfum annarra og reynum að láta allt ganga upp. Okkar eigin þarfir bíða gjarnan þar til tími gefst — þegar minna verður að gera og allt hitt er komið í farveg. En er það rétta leiðin?

Hvað myndi gerast ef við byrjuðum á okkur sjálfum?

Að setja sig í fyrsta sæti er að gefa eigin líðan, orku og þörfum pláss í daglegu lífi. Að átta sig á því hvað nærir okkur, hvað tekur frá okkur orku og hvar við þurfum að setja mörk.

Í netfyrirlestrinum Byrjaðu á þér skoðum við hvernig við getum hlúð betur að okkur sjálfum og skapað venjur sem styðja við vellíðan í lífi og starfi. Með litlum, raunhæfum skrefum á hverjum degi getum við gefið okkur meira rými til að hlúa að okkur og því sem nærir okkur sem skilar sér í bættu jafnvægi og betri líðan sem endurspeglast síðan í því sem við tökum okkur fyrir hendur.

Þetta er stund til að staldra við, beina athyglinni inn á við og spyrja: Hvað þarf ég — og hvernig get ég gefið því meira vægi í daglegu lífi?


Previous
Previous
24 September

Hamingjuskál hjá Feel Iceland

Next
Next
6 November

J-Dagurinn