Hamingjuskál & fyrirtækjaheimsókn
hjá Feel Iceland
Fimtudaginn 24. september
Feel Iceland, Strandgata 29 kl.18:00 - 19:30
Í tilefni af hamingjudögum í Hafnarfirði býður Markaðsstofan í samstarfi við Feel Iceland í hamingjuskál og fyrirtækjaheimsókn. Við ætlum að hittast og skála fyrir haustinu og fræðast um þetta öfluga og spennandi fyrirtæki.
Feel Iceland er stofnað af konum fyrir konur. Fyrsta vara þeirra kom á markað árið 2014 þegar kollagen var lítið þekkt en í dag er Feel Iceland kollagenið það mest notaða á Norðurlöndunum.
Frá árinu 2013 hefur fyrirtækið nýtt yfir 3.000 tonn af fiskroði sem áður var fargað til að búa til hágæða fæðubótaefni og drykki. Feel Iceland kollagenið er framleitt úr íslensku fiskroði í hátækni framleiðslu.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest - Skráðu þig og þína hér að neðan.