Back to All Events

V A X A - Ráðstefna

  • Bókasafn Hafnarfjarðar Hafnarfjörður, Hafnarfjarðarkaupstaður, 220 Iceland (map)

VAXA

Hvert er næsta skref?

Öll fyrirtæki vilja vaxa — en hvernig vitum við hvar tækifærin liggja og hvert næsta skref á að vera?

Sum fyrirtæki standa á tímamótum. Önnur vilja sækja á nýja markaði, auka markaðshlutdeild eða styrkja reksturinn. Mörg sjá tækifæri í nýrri tækni, hugmyndum og kraftinum sem býr í starfsfólkinu.

En hvernig verða tækifærin að raunverulegum vexti?

VAXA er hálfsdagsráðstefna þar sem við skyggnumst inn í vaxtarsögur fyrirtækja í Hafnarfirði. Fyrirtæki sem hafa farið ólíkar leiðir deila reynslu sinni, lærdómi og ákvörðunum sem hafa mótað vegferð þeirra.

Við ræðum tímamótin, áskoranirnar og skrefin sem komu hlutunum af stað. Hvað gekk vel? Hvað þurfti að endurhugsa? Og hvað geta önnur fyrirtæki lært af þeirri reynslu?

Hvað færðu út úr ráðstefnunni?

  • Innblástur úr reynslusögum fyrirtækja í Hafnarfirði.

  • Ný sjónarhorn á tækifærin í þínum rekstri.

  • Hagnýtar hugmyndir til að móta næsta vaxtarskref.

  • Tækifæri til að kynnast öðrum í atvinnulífinu og bera saman bækur.

Fyrir hverja er VAXA?

VAXA er fyrir eigendur fyrirtækja, stjórnendur, frumkvöðla og starfsfólk sem kemur að þróun og uppbyggingu fyrirtækja — hvort sem næsta skref er að stækka, sækja fram á nýjum vettvangi eða styrkja grunninn fyrir áframhaldandi vöxt.

Komdu og fáðu innblástur, deildu reynslu og finndu þitt næsta skref.

Dagsetning: 29. október 2026
Tími: 12:00 - 16:00
Staður: Bókasafn Hafnarfjarðar, Firði
Þátttökugjald: 

6.900 kr. fyrir aðildarfélaga MSH
10.900 kr. fyrir aðra gesti

Nánari dagskrá og fyrirlesarar verða kynnt innan skamms.

Previous
Previous
6 November

J-Dagurinn

Next
Next
9 December

Jólagleði Markaðsstofunnar