Samningaviðræður, atvinnuhúsnæði, bílastæðamerkingar ofl.
Stjórn markaðsstofunnar kom saman á rafrænum fundi þann 11. nóvember.
Meðal umræðuefna var framlenging á samstarfssamning markaðsstofunnar og Hafnarfjarðarbæjar en samkvæmt fyrstu drögum að fjárhagsáætlun bæjarins virðist ósk um hærra fjárframlag og lengingu gildistíma ekki ætla að ganga fram. Beðið er eftir að fá fund með formanni bæjarráðs og bæjarstjóra til að fara betur yfir stöðuna.
Ný atvinnuhúsnæði í bænum
Umræða var um breytingar á deiliskipulagi í miðbænum og áhrif á atvinnuhúsnæði meðal annars á Dvergsreitnum. Aðilar í markaðsstofunni eru sumir hverjir ósáttir við þessa þróun en þó er óljóst hvaða áhrif breyting á deiluskipulagi hefði á reitinn. Óskum eftir nánari upplýsingum frá skipulagssviði. Framkvæmdastjóri hefur hins vegar nú þegar sett sig í samband við byggingarverktaka varðandi aðkomu eða aðstoð með útleigu eða sölu atvinnuhúsnæðisins enda fáum við reglulega fyrirspurnir varðandi atvinnuhúsnæði í miðbænum.
Fjárhagsáætlun og bílastæðamerkingar
Fjárhagsáætlun 2022 var til umræðu en hana þarf að endurskoða ef hækkun fjárframlags gengur ekki í gegn.
Framkvæmdastjóri vakti athygli á að allt frá því í janúar hefur markaðsstofan verið að ýta á og hvetja til betri merkinga á skammtímastæðum á stóra bílastæðinu við Linnetstíginn. Samþykkt var af Umhverfis- og framkvæmdaráði í janúar 2021 að lagfæra merkingarnar og gera þær sýnilegri. Þrátt fyrir ítrekaðar áminningar hefur ekkert gerst og verður samkvæmt nýjustu tilkynningu ekki gert fyrr en í upphafi nýs árs.
Að lokum var ákveðið að fundartími verði ávallt kl. 8:15, ekki kl. 8:30, fyrsta fimmtudag hvers mánaðar en þó með möguleika á fjölgun funda ef svo ber við.