Hvaða fyrirtæki verður valið fyrirtæki ársins í Hafnarfirði?
Opnað hefur verið fyrir tilnefningar
Fyrirtæki ársins í Hafnarfirði verður valið síðasta vetrardag, miðvikudaginn 22. apríl við hátíðlega athöfn í Hafnarborg.
Hvatningarverðlaun Markaðsstofunnar hafa verið veitt því fyrirtæki sem þótt hefur skara fram úr og vakið eftirtekt fyrir sín störf. Taktu þátt í valinu á fyrirtæki ársins með því að senda inn tilnefningu.
Hvaða hafnfirska fyrirtæki hefur lyft upp bæjaranda Hafnarfjarðar með starfsemi sinni og athöfnum og ætti að vera útnefnt Fyrirtæki ársins í Hafnarfirði?
Nú hefur verið ákveðið að útnefna Fyrirtæki ársins ásamt því að veita viðurkenningar til nýliða eða frumkvöðuls sem hafa með starfsemi sinni eflt atvinnulíf og bæjaranda í Hafnarfirði. Eins veitir Markaðsstofan ákveðin þakkarverðlaun þegar við á.
Tilnefningar
Allir geta tilnefnt en nauðsynlegt er að láta röksemdarfærslu fylgja með. Skipuð dómnefnd fer í kjölfarið yfir tilnefningarnar og velur verðlaunahafa úr þeim hópi. Fimm fyrirtæki verða tilnefnd og sigurvegarinn verður tilkynntur við hátíðlega athöfn 22. apríl í Hafnarborg.
Hægt er að senda inn tilnefningu til og með 22. mars næstkomandi.