Dómnefnd velur fyrirtæki ársins í Hafnarfirði

Nú hefur dómnefnd verið skipuð til að velja fyrirtæki ársins í Hafnarfirði. Lokað var fyrir innsendingar 26. mars og bárust fjölda tilnefninga frá ólíkum aðilum. Dómnefndin mun funda og fara yfir tilnefningar og skera úr um hvaða fyrirtæki verður valið fyrirtæki ársins í Hafnarfirði og eins hver er nýliði ársins í Hafnarfirði. Markaðsstofan veitir einnig þakkarverðlaun þegar við á, en á síðasta ári fengu bæði Dalakofinn og Súfurstinn þakkarverðlaun Hafnarfjarðar eftir áratuga starfsemi í Hafnarfirði.

Dómnefndin í ár skipa:

Atli Þór Albertsson - Stofan fasteignir og stjórnarmaður MSH

Helga Þóra Eiðsdóttir - Stjórnarkona MSH

Ingvi Einar Ingason - Mars media

Katla Hrund Karlsdóttir - Barbara kaffibar

Páll Eyjólfsson - Bæjarbíó

Þrjú fyrirtæki hljóta tilnefningu sem fyrirtæki ársins og eftir páska mun Rec media heimsækja þessi fyrirtæki til að kynnast fyrirtækjunum enn frekar að heyra þeirra sögu. Við hlökkum til að kynna þessi flottu fyrirtæki fyrir ykkur og svo auðvitað fagna saman á viðburðinum í Hafnarborg, 22. apríl kl.17:30-19:00 áður en haldið verður á Heima hátíðina.

Next
Next

Hafnarfjarðarkortið komið á skrið