Dómnefnd hefur valið þrjú fyrirtæki sem hljóta tilnefningu sem fyrirtæki ársins í Hafnarfirði
Dómnefnd hefur komið sér saman um hvaða fyrirtæki hljóti tilnefningu sem fyrirtæki ársins eftir líflegar umræður um innsendar tilnefningar.
Fyrirtækin sem hljóta tilnefningu í ár eru Kjötkompaní, Fjörukráin & Álverið í straumsvík.
Einnig verður valinn nýliði ársins í Hafnarfirði, ásamt því að veita ákveðin þakkarverðlaun.
Fyrirtæki ársins í Hafnarfirði verður valið með pompi og prakt síðasta vetrardag, 22. apríl í Hafnarborg. Dagskráin er svo sannarlega ekki af verri endanum. Boðið verður upp á sérlega gómsætar veitingar í föstu og fljótandi formi. Tilvalið að koma áður en haldið er á Heima hátíðina.
Skráning fer fram hér að neðan