Gakktu í bæinn - Hafnarfjörður býður heim 9. maí
Markaðsstofa Hafnarfjarðar kynnir Gakktu í bæinn, sem haldinn verður haldinn 9. maí næstkomandi en þá mun Hafnarfjörður bjóða heim. Markmiðið með deginum er að sýna kraftinn, sköpunina og fjölbreytnina í verslun, veitingaflóru og atvinnulífi bæjarins og vekja athygli á fjölbreyttri og spennandi starfsemi fyrirtækja í Hafnarfirði. Hugmyndin er einföld – að opna dyrnar, eiga samtal og sýna allt það góða og fjölbreytta sem atvinnulífið í Hafnarfirði hefur upp á að bjóða.
Á þessum degi bjóðum við hafnfirðinga og aðra gesti að ganga í bæinn og eiga góðan dag í firðinum fagra. Þetta er einstakt tækifæri til að kynnast ólíkum fyrirtækjum og starfsemi þeirra. Auk þess viljum við skapa líflega og skemmtilega stemningu í bænum þar sem menning og afþreying fá að njóta sín samhliða atvinnulífinu. Við hvetjum þátttakendur til að vera skapandi og, ef við á, bjóða upp á létta dagskrá – tónlist, list, smakk, sýnikennslu eða annað sem gleður gesti og gerir upplifunina eftirminnilega.
Við vitum að á bak við hvert fyrirtæki er saga, þekking og fólk sem gaman væri fyrir bæjarbúa og gesti að kynnast – og því væri frábært að sjá ykkur taka þátt.
Það væri virkilega ánægjulegt ef þið sæjuð ykkur fært að vera með og leggja ykkar af mörkum til að gera daginn líflegan, fjölbreyttan og eftirminnilegan. Ef þitt fyrirtæki vill taka þátt í dagskránni þá biðjum við ykkur um að fylla út formið hér að neðan.
Við hvetjum verslanir og veitingahús til að bjóða uppá spennandi tilboð á vörum og þjónustu ef greitt er með Hafnarfjarðarkortinu, en þennan dag þá tekur Markaðsstofan enga þóknun af greiðslum. Ef þitt fyrirtæki er ennþá ekki í Hafnarfjarðarkortinu þá getur þú skráð ykkur inn á heimasíðu kortsins, www.hafnarfjardarkortid.is
Dagskráin verður auglýst vel og því tækifæri til að fá sýnileika og auglýsingu ykkur að kostnaðarlausu.
Endilega látið okkur vita fyrir 15. apríl hvort þið hafið áhuga eða ef þið viljið fá nánari upplýsingar — við erum alltaf til í spjall.