Fjörukráin valin Fyrirtæki ársins í Hafnarfirði

Unnur Viðarsdóttir, Jóhannes Viðar Bjarnason og Birna Viðarsdóttir, fulltrúar Fjörukráarinnar, fyrirtæki ársins 2026.

Fjörukráin var valin Fyrirtæki ársins í Hafnarfirði við hátíðlega athöfn á vegum Markaðsstofu Hafnarfjarðar sem fram fór síðasta vetrardag í Hafnarborg. Með viðurkenningunni er kastljósinu beint að fyrirtæki sem hafa skarað fram úr í að efla atvinnulíf og bæjarbrag í Hafnarfirði.

Verðlaunin, sem áður voru veitt undir heitinu Hvatningarverðlaun Markaðsstofu Hafnarfjarðar, hafa verið afhent frá árinu 2017. Þau eru veitt árlega fyrirtæki sem hefur með starfsemi sinni, metnaði og framlagi haft jákvæð áhrif á atvinnulíf bæjarins og samfélagið í heild.

Fjörukráin hóf starfsemi sem lítill veitingastaður með áherslu á íslenskan mat og víkingaþema, þar sem sérstök stemning var í fyrirrúmi, raunveruleg nýjung hér á landi. Lifandi skemmtun, víkingaímynd, sögulegt umhverfi og umfram allt góður matur voru lykillinn að árangri staðarins. Þessi sérstaða var þróuð markvisst og varð að helsta vörumerki Fjörukrárinnar. Fjörukráin hefur um árabil verið einn af einkennisstöðum Hafnarfjarðar og skapað sér sterka sérstöðu, bæði meðal bæjarbúa og gesta. Með öflugri starfsemi, skýrri ímynd og eftirminnilegri upplifun hefur fyrirtækið verið mikilvægur hluti af bæjarlífinu og lagt sitt af mörkum til að styrkja Hafnarfjörð sem áhugaverðan og lifandi áfangastað, jafnt fyrir ferðamenn sem Íslendinga, og er órjúfanlegur hluti af ímynd Hafnarfjarðar.

„Það er afar ánægjulegt að geta veitt Fjörukránni þessa viðurkenningu. Fyrirtækið hefur með sínum einstaka karakter, metnaði og langvarandi framlagi haft jákvæð áhrif á bæjarbrag, mannlíf og atvinnulíf Hafnarfjarðar. Slík fyrirtæki eru dýrmæt fyrir samfélagið okkar og eiga sannarlega skilið að þeim sé sýnd viðurkenning,“ segir Þóra Hrund, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar.

Auk Fjörukrárinnar voru Kjötkompaní og álverið í Straumsvík tilnefnd til Fyrirtækis ársins í Hafnarfirði. Öll eiga þau það sameiginlegt að hafa á sinn hátt lagt sitt af mörkum til að efla atvinnulíf, þjónustu og samfélag í bænum.

Við sama tækifæri voru einnig veittar fleiri viðurkenningar. Barbara kaffibar hlaut viðurkenningu sem Nýliði ársins í Hafnarfirði, en sérstök þakkarverðlaun hlutu Burkni blómabúð og Nonni Gull fyrir áralangt og mikilvægt framlag til atvinnulífs og bæjarbrags í Hafnarfirði.

Markaðsstofa Hafnarfjarðar óskar öllum þeim fyrirtækjum sem hlutu viðurkenningar og voru tilnefnd innilega til hamingju, og þakkar um leið öllum þeim sem með starfi sínu, hugrekki og frumkvæði leggja sitt af mörkum til að gera Hafnarfjörð að öflugu samfélagi til búsetu, atvinnu og mannlífs.

Next
Next

Gakktu í bæinn - Hafnarfjörður býður heim 9. maí