Takk fyrir komuna á Fyrirtæki ársins í Hafnarfirði
Við viljum þakka öllum sem komu og fögnuðu með okkur þegar fyrirtæki ársins í Hafnarfirði var valið, síðasta vetrardag. Það var sannkallaður hátíðardagur í Hafnarfirði og margt um mannin enda Heima hátíðin síðar um kvöldið.
Kallað var eftir tilnefningum frá fyrirtækjum og einstaklingum og bárust fjölmargar tilnefningar. Dómnefnd valdi úr innsendum tilnefningum þrjú fyrirtæki sem hún taldi hæfust, Fjörukrána, Kjötkompaníið og Rio Tinto á Íslandi.
Góð mæting var við athöfnina og boðið var upp á gómsætar veitingar frá Elhúsinu okkar, sem er nýtt fyrirtæki hér í Hafnarfirði.
Nýliði ársins í Hafnarfirði var Barbara kaffibar.
Sú viðurkenning er veitt fyrirtæki sem hefur á skömmum tíma vakið verðskuldaða athygli, sýnt frumkvæði, metnað og gefið skýrt til kynna að það sé komið til að setja sitt mark á bæinn.
Barbara kaffibar hefur á stuttum tíma skapað sér fallegan sess í bæjarlífinu með hlýlegri stemningu, metnaðarfullri þjónustu og sterkri nærveru í nærumhverfinu. Slík fyrirtæki skipta miklu máli fyrir bæjarbraginn, þau skapa líf, tengingu og upplifun og gera Hafnarfjörð enn notalegri og meira aðlaðandi stað til að búa í og heimsækja.
Þóra Hrund, Valdimar Víðisson, bæjarstjóri ásamt Sigurði Halldóri Bjarnasyni og Kötlu Hrund Karlsdóttur hfrá Barböru kaffihúsi.
Þá voru sérstök Þakkarverðlaun veitt og hlutu Nonni gull og Blómabúðin Burkni þau verðlaun.
Þau eru til fyrirtækja sem hafa starfað í bænum okkar í árabil og eru órjúfanlegur hluti af bæjarbrag Hafnarfjarðar. Slík fyrirtæki skipta samfélagið okkar miklu máli. Þau skapa ekki aðeins störf og þjónustu, heldur líka samfellu, traust og þá tilfinningu að hér sé gott að búa og starfa.
Blómabúðin Burkni, sem hefur með hlýju, litum og persónulegri þjónustu komið við sögu í lífi ótal bæjarbúa en fyrirtækið hóf starfsemi sína 1962 og hefur þriðja kynslóðin tekið við.
Nonni Gull hefur með traustum rekstri og fagmennsku verið fastur punktur í bæjarlífinu í gegnum árin.
Jón Halldór Bjarnason og Brynhildur Helgadóttir
Það var nokkur spenna þegar kom að því að kynna hvaða fyrirtæki yrði útnefnt fyrirtæki ársins. Fyrst voru sýnd myndbönd með kynningum á fyrirtækjunum.
Fjörukráin
Fjörukráin er einstakur og rótgróinn staður í Hafnarfirði sem hefur um árabil skapað sér sérstöðu, bæði meðal bæjarbúa og gesta. Með sterkri upplifun, skýrum karakter og hlýlegum móttökum hefur Fjörukráin verið mikilvægur hluti af bæjarbragnum og stuðlað að því að gera Hafnarfjörð að lifandi og eftirminnilegum áfangastað.
Kjötkompaní
Kjötkompaní hefur byggt upp öflugt fyrirtæki með skýra sýn á gæði, fagmennsku og góða þjónustu. Fyrirtækið hefur vakið athygli fyrir metnað í rekstri, sterka ímynd og framúrskarandi vöruúrval. Með því hefur það ekki aðeins skapað sér traustan sess heldur einnig eflt verslun og þjónustu í Hafnarfirði.
Rio Tinto á Íslandi
Álverið í Straumsvík er eitt af stærri og mikilvægustu fyrirtækjum sveitarfélagsins og hefur í áratugi gegnt lykilhlutverki í atvinnulífi Hafnarfjarðar. Fyrirtækið hefur haft víðtæk áhrif á samfélagið, skapað fjölda starfa og lagt sitt af mörkum til uppbyggingar og þróunar. Þar fer saman sterk atvinnusköpun, þekking og mikilvæg tenging við sögu og þróun atvinnulífs í bænum.
„Öll þessi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að hafa á sinn hátt lagt sitt af mörkum til að styrkja samfélagið okkar og atvinnulífið í Hafnarfirði. Fyrir það eigum við þeim mikið að þakka og þau eiga öll heiðurinn skilinn fyrir tilnefninguna,“ sagði Þóra Hrund.
Markaðsstofa Hafnarfjarðar óskar Fjörukránni hjartanlega til hamingju með titilinn Fyrirtæki ársins í Hafnarfirði, sem og öllum þeim fyrirtækjum sem hlutu viðurkenningar eða tilnefningar. Um leið þakkar markaðsstofan öllum þeim sem standa að baki atvinnulífi bæjarins — stjórnendum, starfsfólki, frumkvöðlum og eigendum — fyrir þeirra framlag. Þau eru mikilvægur hluti af hjarta Hafnarfjarðar og því sem gerir bæinn að öflugu samfélagi til atvinnu, mannlífs og búsetu.