Back to All Events

Hafnarfjarðarkortið - Opinn fundur

  • Betri stofan Hafnarfjörður, Hafnarfjarðarkaupstaður, 220 Iceland (map)

Hafnarfjarðarkortið - Opinn fundur á Betri stofunni
Ný og spennandi lausn fyrir íbúa og fyrirtæki í Hafnarfirði

Við viljum blómlegt atvinnulíf í Hafnarfirði
Markaðsstofa Hafnarfjarðar vinnur að því að búa til sterkt samfélag fyrirtækja í Hafnarfirði og auka eftirspurn eftir hvers kyns vöru og þjónustu í Hafnarfirði með það að leiðarljósi að auka viðskipti innan bæjarins.

Við erum því afar spennt að kynna Hafnarfjarðarkortið, sem er ný og spennandi lausn fyrir íbúa og fyrirtæki í Hafnarfirði. Hafnarfjarðarkortið er gjafa- og inneignarkort sem hægt verður að nota í fjölmörgum verslunum, þjónustufyrirtækjum, kaffihúsum og veitingastöðum víðs vegar um bæinn.

Hafnarfjörður er því fyrsta sveitafélagið til að vera með eigin greiðslulausn og með Hafnarfjarðarkortinu erum við í raun að eignast okkar eigið hagkerfi sem skapar ekki bara virði fyrir fyrirtækin í bænum heldur líka fyrir íbúa og sveitarfélagið sjálft, því peningurinn helst innan bæjarfélagsins.

Hafnarfjardarkortid.is

Ný heimasíða er komin í loftið og verður uppfærð með nýjum aðilum á næstu vikum á meðan fyrirtæki eru að skrá sig. Hafnarfjarðarkortið verður orðið virkt og nothæft 20. desember.


Ekki gleyma að fylgja okkur á Instagram @hafnarfjardarkortid

Hvernig virkar Hafnarfjarðarkortið
Kortið virkar eins og inneignarkort, þú velur upphæðina og viðtakandinn ákveður hvar hann nýtir hana. Þannig er Hafnarfjarðarkortið gjöf sem gleður og hefur á sama tíma gildi í samfélaginu. Hafnarfjarðarkortið styður við fyrirtækin í bænum og hjálpar til við að efla verslun og þjónustu í Hafnarfirði.

Eitt kort, fjölmargir möguleikar
Hafnarfjarðarkortið er þó ekki eingöngu gjafakort því kortið er einskonar greiðslukort sem gildir víðsvegar um Hafnarfjörð. Fyrirtækjum býðst að bjóða upp á ýmis fríðindi eða tilboð sem eingöngu er hægt að nýta sér með Hafnarfjarðarkortinu sem skapar tækifæri til að draga að viðskiptavini og auka viðskipti.
Því ættu allir Hafnfirðingar að vera með Hafnarfjarðarkortið í vasanum og öll fyrirtæki að vera i kortinu, því kortið er lykillinn að Hafnarfirði.

Virkt í Apple wallet og Android farsímun
Kosturinn við Hafnarfjarðarkortið er að eigandi setur kortið í símann, það er virkt í Apple wallet og Android farsímum og viðkomandi þarf aldrei aftur að muna eftir gjafakortinu sínu.

Hægt er að kaupa kortið rafrænt en fyrir þá sem vilja geta sett eitthvað í pakkann er líka að hægt að fá Hafnarfjarðarkortið í gjafaöskju. Hægt verður að kaupa gjafaöskjur frá 5. desember í Jólaþorpinu og í þjónustuveri Hafnarfjarðar.

Verslum innanbæjar fyrir jólin
Við viljum hvetja alla til að versla innanbæjar fyrir jólin, við þurfum ekki að leita langt yfir skammt því Hafnfirðingar eru svo heppnir að búa yfir fjölbreyttu úrvali verslana, veitingastaða og þjónustufyrirtækja.

Fáðu þína sneið af kökunni
Markmið Markaðsstofunnar er að selja fjölda korta fyrir jólin, bæði til einstaklinga og fyrirtækja. Starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar fær Hafnarfjarðarkortið í jólagjöf og því strax mikill ávinningur fyrir fyrirtæki að taka við kortinu. Ekki missa af tækifærinu til að trekkja að fjölda viðskiptavina.

Previous
Previous
13 November

VAXA - Hvernig höldum við áfram að vaxa

Next
Next
10 December

Jólagleði Markaðsstofunnar