Fyrsti fundur nýrrar stjórnar
Fyrsti fundur nýrrar stjórnar markaðsstofunnar var haldinn þann 10. júní síðastliðinn.
Á fundinum skiptu stjórnarmenn með sér embættum og eftir kosningu var ljóst aðað skipan stjórnar haldist óbreytt á komandi starfsári. Sigríður Margrét Jónsdóttir verður áfram formaður, Örn H. Magnússon varaformaður, Anna Ólafsdóttir gjaldkeri og Arnbjörn Ólafsson ritari.
Umræður voru um fyrstu skrefin í tengslum við stefnumótunarvinnu og ákveðið í því samhengi að fá kynningu fyrir stjórnarmeðlimi og framkvæmdastjóra hjá Markaðsstofu Kópavogs á nýju atvinnu- og nýsköpunarsetri þar í bæ. Jafnframt var ákveðið að árleg heimsókn og kynning í bæjarráði verði í ágúst.
Undir liðnum önnur mál var samþykkt að Olga Björt Þórðardóttir, varamaður stjórnar stígi tímabundið inn sem aðalmaður í stjórn stofunnar í stað Jóhanns Davíðs Barðasonar, sem tekur sæti varamanns. Þá var ákveðið að framkvæmdastjóri vinni í framtíðinni stuttar samantektir af stjórnarfundum og setji bæði á vef og samfélagsmiðla. Að lokum var tekið vel í hugmynd að útbúa stutta samantekt á starfsemi stofunnar á ensku og pólsku, og jafnvel skipuleggja einstaka kynningar eða fræðslufundi á öðrum tungumálum.