Aðildarfyrirtækin orðin 110
Aðildarfyrirtækjum markaðsstofunnar hefur fjölgað ört og þétt undanfarnar vikur og mánuði og nú eru þau orðin 110 talsins. Við erum ákaflega ánægð með þennan aukna áhuga á starfinu okkar sem styrkir meðal annars tengslanet og í sameiningu eflum við og styrkjum hafnfirskt atvinnulíf.
Nýjustu fyrirtækin í hópnum okkar eru:
· Kökulist
· Sassy
Starfsfólk þessara fyrirtækja fær nú aðgang að fræðslu og fyrirtækjaheimsóknum markaðsstofunnar þeim að kostnaðarlausu. Þá er nafn fyrirtækisins jafnframt komið í pottinn góða þar sem fyrirtæki vikunnar er dregið út.
Vertu með
Við hvetjum rekstraraðila í Hafnarfirði sem ekki eru skráðir í markaðsstofuna að gera það sem fyrst. Árgjaldið er 20.000 kr.