Heimsókn í Íshúsið

Íshús Hafnarfjarðar býður starfsfólki aðildarfyrirtækja markaðsstofunnar í heimsókn fimmtudaginn 16. september næstkomandi kl. 17:00. Anna María Karlsdóttir, einn eigandi Íshússins, tekur á móti okkur, kynnir starfsemina og sýnir aðstöðuna.

Þetta er fyrsta fyrirtækjaheimsókn markaðsstofunnar í ár en við teljum þær vera góðan vettvang fyrir hafnfirsk fyrirtæki til að efla og styrkja tengslanetið. Við vonumst því til að sjá sem flesta.

Skráning
Nauðsynlegt er að skrá sig á viðburðinn fyrir þann 14. september með því að senda póst á msh@msh.is

Er fyrirtækið þitt ekki í markaðsstofunni? Þú getur skráð það hér

Previous
Previous

Undirbúningur fyrir fund í bæjarráði

Next
Next

Góðar umræður á morgunfundi